|
Könnun
Engin könnun í gangi, athugaðu aftur seinna.
Heimsóknir
Í dag: 0 Alls: 4257
|
24.05.2008 13:43:44 / 1deildin
Það voru 3 leikir í gær í 1 deildinni. Víkingur R tapaði fyrir nýliðum Haukum.
Úrslitin =
Haukar 3-1 Víkingur R
Ka 2-2 Selfoss
Íbv 2-0 Stjarnan
»
18.05.2008 23:15:01 / 1deildin
Selfoss heldur áfram sigurgöngu sinni en þeir lögðu Leiknir R á heimavelli sínum. Haukar fengu stig úr nánast töpuðum leik gegn Fjarðabyggð en Denis Curic jafnaði á 93 min.
Úrslit dagsins
Víkingur R 3-1 Ka
Fjarðabyggð 2-2 Haukar
Þór A 0-2 Íbv
Víkingur Ó 1-0 Njarðvík
Selfoss 4-2 Leiknir R
Stjarnan 2-1 Ks/Leiftur
»
17.05.2008 13:50:02 / 1deildin
6 leikir verða á morgun.
Leikirnir =
Víkingur R - Ka
Þór A - Íbv
Fjarðabyggð - Haukar
Stjarnan - Ks/Leiftur
Víkingur Ó - Njarðvík
Selfoss - Leiknir R.
»
17.05.2008 13:46:23 / 1deildin
Daniel Jones leikmaður sem spilaði með háskólaliði í Bandaríkjunum hefur samþykkt boð Hauka um að spila með þeim í 1 deildinni í sumar.
Jones er buin að leikheimild og mun því væntanlega spila með Haukum gegn Fjarðabyggð á sunnudaginn sem fer fram á heimavelli Fjarðabyggðar.
»
13.05.2008 00:46:38 / 1deildin
Nýliðarnir úr Selfoss komu heldur betur á óvart þegar þeir fóru til Reykjavíkur og spiluðu við Víking R á Víkingsvelli. Selfoss var að leika sinn fyrsta leik í 1 deildinni síðan 1993 . 15 ár eru liðin síðan Selfoss var í 1 deildinni síðast. Ekki er hægt að segja annað en að Selfoss byrji með látum í deildinni en þeir lögðu Víking R að velli 2-3 á erfiðum útivelli. Það voru Selfyssingar sem komust yfir á 12 mínótu með marki frá Agnari Braga gegn gangi leiksins má segja því Víkingar áttu skot í slá og svo bjargaði Selfoss á línu. Á 36 min skoruðu svo Víkingsmenn jöfnunarmarkið. Víkingsmenn bættu svo við öðru marki 4 mínótum síðar og fóru í hálfleik með 2-1 forystu. En þess má geta að Víkingur R þurfti að gera markmannsskipti á 24 min. Í síðari hálfleik gerðist það svo að Pétur Örn Sveinsson leikmaður Víkings R fékk sitt annað gula spjald og var sendur í sturtu. Þetta átti eftir að reynast Víkingi erfitt að lenda manni undir og fengu svo á sig mark á 71 min þegar Sævar Þór skoraði. Svo á 84 mínótu gerðist umdeilt atkvik, Milos Glagovac togaði Viðar Arnar niður í teignum og Milos trúði vart sínum eigin augum þegar Þóroddur Hjaltalín dómari flautaði í flautunu sína eins og óður maður og benti á vítapunktinn. Sævar Þór fór á punktinn fyrir Selfoss og var öryggið uppmálið og hamraði boltann í netið og tryggði þar með Selfyssingum ævintýranlegan sigur á Víkingi R á útivelli. Dómarar voru Dómari = Þóroddur Hjaltalín Aðstoðardómari 1 = Einar Sigurðsson Aðstoðardómari 2 = Smári Stefánsson Eftirlitsmaður = Egill Már Markúrsson
»
13.05.2008 00:25:24 / 1deildin
Njarðvík og Stjarnan mættust í dag á Njarðtaksvellinum heimavelli Njarðvíkur. Bæði lið spiluðu vel og ætluðu sér 3 stig. Í fyrri hálfleik var mikið jafnræði með liðunum. Ísak Örn var þó hættulegastur af leikmönnum Njarðvíkur og átti hann nokkur hættuleg skot en öll fóru þau rétt framhjá. Í seinni hálfleik var Stjarnan betri og sköpuðu sér betri færi en með mjög skipulögðum varnarleik Njarðvíkinga þá áttu Stjörnumenn í erfiðleikum með að koma boltanum yfir línuna. Á 74 mínótu dró til tíðinda eftir mikinn hamagang í teignum hjá Njarðvík þá fékk varamaðurinn Bjarki Páll boltann einn og óvaldaður og skaut en Ingvar Jónsson varði frábærlega eins og oft á tíðum í leiknum en sóknin var ekki búin boltinn rann til eins Stjörnumansins sem þrumaði boltanum hátt yfir, en hann var meter frá markinu.
Lokatölur þvó 0-0 í Njarðvík. En þetta er í fyrsta skipti sem Stjarnan fer heim með stig frá Njarðvík.
Dalibor Lazic og Vignir Benidiktsson voru að spila sínu fyrstu leiki í græna búningnum.
alls mættu 204 manns á Njarðtaksvöllin í dag.
Dómarar í dag voru Dómari = Frosti Viðar Gunnarsson Aðstoðardómari 1 = Jóhann Gunnarsson Aðstoðardómari 2 = Jón Magnús Guðjónsson Eftirlitsmaður = Baldur Berndsen Maríusson
»
12.05.2008 11:27:18 / 1deildin
1 umferðin í 1 deildinni verður leikin í dag og hefjast allir leikirnir kl 17:00.
umferðinni lýkur svo á morgun þegar Þór A tekur á móti Ks/Leiftur.
Leikirnir =
Njarðvík - Stjarnan
Ka - Fjarðabyggð
Víkingur R - Selfoss
Haukar - Víkingur Ó
Íbv - Leiknir R
»
04.05.2008 13:44:11 / 1deildin
Fjarðabyggð mun lenda í 3 sæti samkvæmt spánni.
alls kusu 39.
Fjarðabyggð fékk 19 atkvæði en Íbv fékk 18 !!.
Víkingur R fékk 4 atkvæði
Spáin =
1.? 2.? 3. Fjarðabyggð 4. Stjarnan 5. Þór A 6. Selfoss 7. Njarðvík 8. Ka 9. Haukar 10. Leiknir R 11. Víkingur Ó 12. Ks/Leiftur
»
|